21.12.2008 14:30:41 / perlamarley
Að því tilefni að jólin eru rétt að detta inn hérna hjá okkur, þá ætla ég að rita hér inn uppáhalds jólakvæðið mitt

Og þar sem ég kem varla til með að skrifa eitthvað rugl hér inn á næstunni þá býð ég ykkur öllum gleðilegra jóla og farsæls komandi árs..

Jólakveld
Nú skal leika á langspilið veika
og lífsins minnast í kveld,
hjartanu orna við hljóma forna
og heilagan jólaeld,
meðan norðurljós kvika og blástjörnur blika
og boganum mínum ég veld.
Ég blundaði hljóður við brjóst þín, móðir,
sem blómið um lágnættið.
Þú söngst um mig kvæði; við sungum bæði
um sakleysi, ástir og frið.
Þú gafst mér þann eld, sem ég ennþá í kveld
get ornað hjartanu við.
Þú hófst mína sál yfir hégóma og tál
og hug mínum lyftir mót sól.
Þú gafst mér þá þrá, sem ég göfgasta á,
og gleði, sem aldrei kól.
Ef ég hallaði mér að hjarta þér,
var mér hlýtt; þar var alltaf skjól.
Og nú vil ég syngja og sál mína yngja
með söngvum um lágnættið hljótt
og hvísla í norður ástarorðum,
meðan allt er kyrrt og rótt,
og láta mig dreyma um ljósin heima,
sem loga hjá mömmu í nótt.
Davíð Stefánsson
»
20.10.2008 15:25:03 / perlamarley
Nei ég ætla ekki að tala um kreppuna. Ég veit að hún er
nýlega byrjuð, en ég er strax komin með leið af henni. Þó finn ég lítið fyrir
henni, hún er bara allstaðar. Í blöðunum, útvarpinu, sjónvarpinu, meira að
segja með kaffinu. Gjörðu svo vel og fáðu þér kaffi og má ekki bjóða þér
örlitla kreppu með?
Ég var samt að uppgötva að ég hef stundum svolítið gaman af stafsetningunni
minni (ekki það að ég sé að slá eign minni á hvernig orð séu stafsett), ég
skrifa kveld, hví, kanske og hvurnig. Mikið þykir mér það skemmtilegt, ég hef
svo gaman af elsku móðurmálinu okkar. Verst að það er að fara í vaskinn, eftir
nokkur ár verður annað hvort orð á ensku. Það ætti varla að skipta nokkru þar
sem það er nokkurnveginn orðið þannig nú þegar. Þó finnst mér það vera synd, ég
er varla sú eina?
Eins og ég hef sagt flestum er búið að blása ævintýralegu utanlandsferðina af.
Henni var frestað uns kreppan er gengin yfir (skíta kreppa), en í staðin ætlum
ég og Unnur að sækja Adda á flugvöllinn er hann flýgur til landsins og dvelja í
nokkra daga fyrir sunnan. Fara í húsdýragarðinn til dæmis. Barnið í mér kemur
alltaf fram þegar ég ferð þangað, svo ég ætla að taka Míu og Þóru með mér (bara
sem cover samt, mig langar örugglega meira en þær) og svo ætla ég að skemmta
mér konunglega.
En jæja, ég ákvað bara að nýta mér tækifærið meðan ég beið eftir baðinu mínu og henda einhverju hér inn, Ég veit að þetta er ekki ýkja merkileg
færsla, en þó eitthvað. Þar til næst mín kæru... Bleeeh
»
04.10.2008 08:03:14 / perlamarley
Ég get svo svarið það að ég kann ekki að fara að sofa þegar ég ætti helst ekki að gera neitt annað! Kom úr vinnu og - auðvitað! Beint í tölvuna..
Ég elska að hafa skoðanir á hlutum. Og það sem er enn betra, að vera búin að kynna mér hlutina og þessvegna hafa fullan rétt og ástæðu fyrir skoðunum mínum! Beauty about books!! Getur lesið þér til um nánast allt, ef ekki allt, og svo getur þú rifist og skammast eins og þú eigir lífið að leysa.
Ég veit fátt jafn skemmtilegt og að rökræða um trúmál (Call me crazy, but it's true!). Ég er búin að lesa mér til um þetta úr hinum og þessum bókum og á meira að segja nokkra dvd diska sem eru svona heimildarmyndir um nokkur trúarbrögð (takk Addi elskan, frábær gjöf!! Gleður mig fátt eins mikið!!). Ég fékk sent verkefni sem ég átti að leysa, vegna fjarnámsins. Og viti menn, verkefnið hét "Mín skoðun". Og spurt var um trúmál!! Ég held að ég hafi aldrei svarað neinu verkefni eins vel og ítarlega, og hvað þá á eins stuttum tíma. Og svona MIKIÐ!!! Ég er bara að vona að karlgreyið sem setti mér þetta fyrir sé ekki jesúkarl... hvað þá Allah!!

Obbobbobb....
Ég elska að hafa skoðanir á hinu og þessu... og það sem ég elska jafnvel enn meira! RÖKRÆÐUR!! Við viti borið fólk þ.e.a.s... fólk má t.d. ekki vera ofsatrúar né neitt í þá áttina því þá er ekkert hægt að tala við það....
Gosh.. er að kafna úr þreytu, nenni ekki að lesa þetta yfir. En þetta er örugglega algjör steypa en HEY! Þetta er þó BLOGG!
Bleeehhhh
»
27.09.2008 04:52:49 / perlamarley
Ég veit að það eru bara 5... en ég ætla að hafa 6. Hah! How do you like that? (weeeell mér er sama)
* Jeffrey Dean Morgan
* Bruce Willis
* Johnny Depp
* Karl Urban
* Gerald Butler
* Jason Statham
Újé beibíí!
»
17.09.2008 03:18:19 / perlamarley
Nú dámar mér!
Ég var að vinna í kveld og ég get svo svarið það að kofinn ætlaði að hrynja yfir mig, það er svo svakalegt rok! Og það er ekki nóg með það, óneinei Hemmi minn kær. Svo var ég að keyra áðan og það fauk svona líka myndarleg grein á bílinn. Ef ég vissi ekki betur þá hefði ég haldið að það væri stór dæld þar sem hún lenti á bílnum, en eins og ég sagði. Ég veit betur. Svo reif ég næstum því megnið af draslinu undan bílnum, því götur bæjarins eru, jújú, þaktar greinum sem vindurinn slítur óðum af trjánum. Og ekki nóg með það, heldur keyrði ég næstum því á kerru!!! Já svona kerru sem er fest aftan í bíla til að flytja.. tjah, sófa og svoleiðis? Hún var bara að dandalast á miðri götu (okay okay, kanske ekki alveg af vilja gert hjá greyinu, hún var samt fyrir!).. Núna segi ég stopp! Er ekki hægt að kveða niður vindinn? Eða biðja hann vinsamlegast um að yfirgefa svæðið því hann er ekki velkominn í partý á íslenskri grund? Plís?
Og núna get ég ekki sofnað því tréin eru orðin vitlaus, vindurinn smitaði þau af partýlöngunninni og nú dansa þau og veifa fyrir utan gluggan minn og lemja meira að segja stundum í hann!! Meiri ósvífnin um miðja nótt finnst þér ekki?
»
01.09.2008 17:37:01 / perlamarley
Fæðingarmánuður?
Janúar; Ég át
Febrúar; Ég sleikti
Mars; Ég fæddi
Apríl; Ég mengaði
Maí; Ég skeit
Júní; Ég skaut
Júlí; Ég strippaði fyrir
Ágúst; Ég reykti
September; Ég ullaði á
Október; Ég klippti
Nóvember; Ég stakk
Desember; Ég gróðursetti
Hvaða dag?
1; Forseta Bandaríkjanna
2; Djúpsteiktar rækjur
3; Vörtusvín
4; Jónsa í Svörtum fötum
5; Langömmu
6; Súpermann
7; Hund nágrannans
8; Indverskan apa
9; Lax
10; Prest
11; Dauðan kött
12; Höndina mína
13; ET
14; Íslenska landsliðið í bókalestri
15; Phoebe í Friends
16; Systur þína
17; 50 cent
18; Mozart
19; Bin Laden
20; Nylon
21; Einstein
22; Stúf
23; Mig
24; Páskahérann
25; Kennara frænku minnar
26; Pál Óskar
27; steinaldarmann
28; Bubba Morthens
29; Keikó
30; Gillzenegger
31; Gilitrutt
Hvaða staf byrjar nafnið þitt á?
A; Af því að krónan féll!!
Á; Af Því að ég er tótallí gay!!!
B; Af Því að High School Musical sökkar!!!
C; Af Því aðamma er með niðurgang!!
D; Af Því að mig vantar hreinar nærbuxur!!!
E; Af Því að jólin gleymdust í ár!!!
É; Af Því að ég er með feita eyrnasnepla!!!
F; Af því að ég er með klementínu fasta í kokinu!!!
G; Af því að ég kann ekki að prjóna!!
H; Af því að hausinn hennar Leoncí datt af!!!
I; Af því að seinni heimstyrjaöldin kláraðist!!
Í; Af því að ég hafði ekkert betra að gera!!!
J; Af því að ég heiti Eyrnaslapi!!!
K; Af því að besti vinurinn minn er rykmaur!!!
L; Af því að ég hafði ekkert étið í 3 ár!!!
M; Af því að Madonna er frátekinn!!
N; Af því að Jörundur var ekki heima!!!
O; Af því að mig langar svo í afró!!!
Ó; Af því að ískápnum mínum var stolið!!
P; Af því að ég elska McFly
R; Af því að ég var sein(n) í vinnuna!!
S; Af því að jarðaförin mín var á sunnudaginn!!!
T; Af því að kúkurinn minn er grænn!!!
U;Af því að Nylon rokkar!!!
Ú; Af því að mér finnst Sigga Beinteins sæt!!
V; Af því að það er kækur!!!
Y; Af því að Hitler var gyðingur!!!
Ý; Af því að ipodinn minn virkar ekki!!!
Þ; Af því að ég mótmæli bílaeigendum!!
Æ; Af því að ég er hjá Glitni!!!
Ö; Af því að garðurinn minn er frumskógur!!!
Endilega commentið ykkar saur!
»
23.08.2008 19:27:13 / perlamarley
Er að panta mér leyfi á netinu til að geta gefið elskendur saman. Svo ef þú og elskhuginn/ástmeyin eruð að hugsa um að ganga í það óheilaga, og viljið hafa þetta frekar casual, þá hafið þið bara samband.
P.s. Gef saman fólk (lifandi helst), dýr sem og hluti. Svo ef þú ert ástfanginn af eldhússtól, þá er ég manneskjan til að staðfesta ást ykkar.
»
29.07.2008 02:20:17 / perlamarley
Halló, góðan daginn!! Versló að ganga í garð. Það verður bara að segjast að þetta sumar, já eða bara það sem liðið er af árinu, er búið að líða alveg skuggalega hratt!
Mínir hjartakæru Hjálmar eru að spila á Akureyri þessa verslunarmannahelgi. Skelfing er ég glöð!
Ég les yfirleitt moggann í vinnunni. Og fyrir alls ekki svo löngu rak ég augun í aðalsmann vikunnar, sem var enginn annar en Herbert Guðmundsson. Hrikalega er hann nú lame eitthvað. So sorry! Vissuði að það er aðdáendaklúbbur sem heitir "HG Klúbburinn"? Nei ekki ég heldur. Og ef ég hefði heyrt þetta einhverstaðar á götum bæjarins hefði mér ekki dottið eitt augnablik að HG stæði fyrir Herbert Guðmundsson.
Tölvan mín er geðbiluð. Hún vildi einu sinni ekki skrifa diska. Og núna skrifar hún diska, jújú, bara ekki nema 9 lög TOPS! Hvað er málið? Mér er spurn..
Jæja, þar sem ég hef ekkert að segja ætla ég að benda ykkur á nokkur lög sem ég mæli eindregið með.. værsgo
Kids - MGMT
Never gonna be the same - Sean Paul
My lady's house - Iron & Wine
Arms - Seabear
Hang me up to dry - Cold War Kids
Loud Pipes - Ratatat
In my secret life - Leonard Cohen
A lalalala long - Bob Marley & UB40
I'm yours - Jason Mraz
I will possess your heart - Death Cab For Cutie
Nothing better - Postal Service
The world at large - Modest mouse
Hook - Blues Traveler
Hurt - Johnny Cash
Vermillion pt. 2 - Slipknot
Swimming in your ocean - Crash Test Dummies
Seize the day - Avenged Sevenfold
Belief - John Mayer
Slight return - Bluetones
Road to zion - Damian Marley
Ætli ég segi þetta ekki bara gott... er að hugsa um að tygja mig í ból..
Bleeehhhh
»
11.07.2008 18:19:50 / perlamarley
Nú er sumarfrí mitt á enda. Ég fer aftur til vinnu kl 19:00 semsagt eftir einhverjar mínútur. Sem er svosem ágætt, ég hef þó eitthvað fyrir stafni.
Það er allt að verða mun raunverulegra hérna heima, ég er komin að sunnan og Hjalti er kominn heim frá Gautaborg. Hann færði mér dýrindis gjöf, Johnny Cash geisladisk og mentos

Ég er mjög hamingjusöm og sátt með mitt.
Pa er að vinna og ma fór út í einhverja eyju með Öddu frænku (Flatey? Er ekki viss). Hjalti vildi endilega komast til vinar síns Steinþórs sem er í sveit inni í Eyjafirði sem stendur. Svo hann bað mig um að keyra sig, rétt fyrir utan Hrafnagil. Auðvitað stekk ég út í bíl með brósa á eftir og tek bensín fyrir heilar 1500 kr sem ég gat ímyndað mér að myndi nægja.
Við vorum í góðum gír, komin reyndar miklu lengra en Hrafnagil, að hlusta á Bobba kall og spjalla saman, þegar ég sé skilti: "Malbik endar". Föööökkk er það fyrsta sem kemur upp í hausinn á mér, ég er ekki mikill aðdáandi malarvega þó ég lifi þó oftast af. Þar að auki er bíllinn minn ekki sá besti í bransanum, heldur eitthvað sem flesti myndu kalla drasl, og tel ég sjálfa mig þar með. Eina sem ég hef um þennan "malar" veg að segja er MALARVEGUR? Þetta var ekki möl, þetta voru stórir grjóthnullungar og svo mikið magn af þeim að ég var allan tíman meðan ég keyrði á þessum skítavegi eins og ég hafi fengið hægðir með sítrónu í morgunmat (sem ég fékk ekki btw). Svo LOKSINS sáum við Steinþór veifa okkur einhverstaðar af einhverju túni fyrir ofan vegin.. þá hafði ég að sjálfsögðu keyrt framhjá afleggjaranum. Og ég á þeim almjóasta vegi sem ég hef augum litið, varð að snúa við! Sjæse. Tók heilar 10 mín í það, en þá var Hjalti stungin af fyrir löngu með því að stökkva bara yfir girðingu. Svo ég var alein í bílnum mínum, með ekkert útvarp (náðist engin stöð þarna leeeeeengst inní firði), sílækkandi bensín (hélt að einn hnullungurinn hefði gert gat á bensíntankinn fyrst um sinn) á ljótum grjóthnullungavegi sem engan endi virtist ætla að taka.
Ég komst þó loks á malbikið aftur, og brosti svoleiðis hringinn. Fólkið sem mætti mér hlýtur að hafa haldið mig eitthvað furðulega.
Hinsvegar held ég að ég hafi upplifað hámark hamingjunnar á leiðinni heim aftur (þegar komið var á malbikið). Skellti nefnilega "Með suð í eyrum við spilum endalaust" (nýji Sigur Rós diskurinn) í tækið og hækkaði allsvaðalega. Galopnaði gluggan með sólgleraugun á nefinu (var að kafna það var alveg glampandi sól).
-Á fleygiferð að keyra framhjá grænum túnum og dýrum á beit, með vindinn í hárinu, fjósalykt í nefinu. Sólin speglast í gleraugunum og Gobbledigook í botni. Ég er að segja ykkur að það gerist ekki betra!
Ég komst heim, með sólheimaglott á fésinu, hamingjusamari en áður, úfin, með afgangsbensín og óskaddaðan bensíntank.
»
02.07.2008 02:12:33 / perlamarley
Ég er nú örugglega ein mesta lúpa sem fyrirfinnst.
Fælnir, fóbíur, hræðsla, ótti... getið kallað þetta það sem þið viljið. En ég er með yfirdrifið nóg af þessu.
Lofthræðsla.. þarf ekki annað en að sjá mynd sem er tekin ofan af hárri byggingu þá hringsnýst allt í hausnum á mér, mér svimar og maginn í mér tekur heljarstökk. Ég get alveg verið í flugvél, já blessaður vertu. Minnsta málið. En ég fer upp á stól og mig svimar.
Sjórinn.. Mér finnst sjórinn krípí. Alveg endalaust krípi meira að segja! Þetta er endalaust magn af vatni, óendanlega djúpt og dimmt. Maður veit ekki hvað er þarna ofan í, hvort það sé eitthvað sem étur mann eða bara strýkst við mann eða hvað. Oj bara, það er það eina sem ég get sagt. Hræðir mig óttalega. Vægast sagt!
Myrkrið.. Margt býr í mykrinu, þó það sé bara ímyndað. Er hrædd um að finna andadrátt aftan á hálsinum, rekast í eitthvað sem á ekki að vera þarna eða bara eitthvað. Bara að eitthvað sé þarna sem á ekki að vera þar. Ímyndunaraflið hleypur alltaf með mig í gönur, verð að reyna að temja það eitthvað, sérstaklega þegar kemur að hræðilegum hlutum.
Dýr sem éta fólk.. Ég vil ekki láta éta af mér líkamshluta. Lýta allt í einu niður og úpps engar lappir!! FOKK NEI!
Náttúruhamfarir.. Eitthvað sem við getum ekki ráðið við. Langt fyrir utan okkar yfirráðasvæði. Við getum ekki stoppað kraumandi hraun sem gýs úr eldfjalli, eða hvirfilbyli sem rífa húsin upp næstum með grunninum.. fríkar mig svo mikið út að hafa enga stjórn á vandamálinu..
Ástvinamissir... Það sem ég hræðist mest af öllu í heimi og geimi. Ég skal synda í kraumandi hrauni, festast ein úti á stórsjó með ekkert nema sjálfa mig til að halda mér á floti, lifa í eilífu myrkri, láta éta af mér alla líkamshluta eða hanga á engu nema smá girnisþræði fram af skýji. Bara ef ég þarf ekki að missa neinn. Ég veit ekki hvað ég myndi gera, hvernig ég myndi snúa mér í þessu... Mig langar ekki einu sinni að ímynda mér svona, því það er alltof ALLTOF hræðilegt...
En þrátt fyrir þetta er ég nú algjör nagli!!
»
21.06.2008 04:55:42 / perlamarley
Ég hef gaman af því að lesa bækur. Allskonar bækur. Unglingabækur, spennusögur, rómantískar bækur... name it! Og þvílík tilviljun, ég er nýbúin að ljúka við eitt stykki bók. Hún ber nafnið Þúsund bjartar sólir og er eftir mann að nafni Khaled Hosseini (Sami höfundur og skrifaði Flugdrekahlauparann (The Kite Runner)). Þessi bók er ein af þessum sögum sem fær mann til að hugsa afhverju maður sé að væla yfir því litla sem angrar mann. Að maður hafi það eiginlega bara assgoti fínt miðað við svo marga aðra. En er rétt að vera að hugsa svona? Við höfum öll náð botninum á okkar eigin hátt, right? Það er ekki hægt að bera saman botninn hjá þessum og hinum, því ég hef ekki lent í sama skít og aðrir. Jú má vera að ef ég hefði lent í svo slæmum hlut að þegar ég myndi lenda í einhverju smávægilegu myndi ég hugsa "Piff þetta var ekkert, borgar sig ekkert að væla yfir smámunum". En þegar manni líður illa þá er maður lítið að hugsa "Hættu að væla, þessi kona í Afganistan var laminn í stöppu af manninum sínum".
Jú ég finn til með þessu fólki, og jú minn skítur kemst ekki í hálfkvisti við þeirra vandamál og vanlíðan. En má maður samt ekki vorkenna sér smá? Brostið hjarta og rifrildi við foreldrana hljómar samt svo lítið mál miðað við margt annað. Æji, skiljið þið hvert ég er að fara með þetta?
Ekki misskilja mig samt.. ég hef það fínt. Fór bara að pæla í þessu þegar ég las Þúsund bjartar sólir. Sem ég by the way mæli eindregið með, hef sjaldan lesið eins góða bók. Er pottþétt í top 5. Fékk mig a.m.k til að taka það til alvarlegrar íhugunar að lesa Flugdrekahlauparann líka.. þessi maður er ótrúlegur penni.
Ef ykkur langar að hlusta á eitthvað flott lag þá mæli ég eindregið með Stevie Wonder (Stebbi Undur eins og við íslendingar myndum orða það). Er búin að hlusta fáránlega mikið á A place in the sun, sem er helv.. gott lag með honum. Og ótrúlegast af öllu... mamma kynnti mig fyrir því. Helvíti gott það.
Ætla að kveðja ykkur með fallegu ljóði eftir hann Stein Steinarr. Þar til næst.. Bleh
Tíminn og vatnið
Í sólhvítu ljósi
hinna síðhærðu daga
býr svipur þinn.
Eins og tálblátt regn
sé ég tár þín falla
yfir trega minn.
Og fjarlægð þín sefur
í faðmi mínum
í fyrsta sinn.
»
16.06.2008 20:35:47 / perlamarley
Ég var að vinna í gær, sunnudagur, það er yfirleitt lítið að gera þá. Svo ég er alltaf með kveikt á tellanum þessi kveld. Í gær lenti ég inni í miðri mynd sem heitir Party Monsters eða eitthvað álíka, og guð sé oss næstur! Þetta var svo mikil steypa að ég varð gjörsamlega heilalaus á því að horfa á þetta. Þetta er semsagt um homma (það voru a.m.k allir karlmenn mjög samkynhneigðir, án þess að ég móðgi nokkurn) sem voru alltaf að djamma og dópa. Jájá mjög týpískur söguþráður, djamm og dóp. En þessi var sko alveg sér á báti. Mæli ekki með henni.. Eina orðið yfir þessa kvikmynd er SÝRA!
En who gives.. right?
Núna sit ég bara og bíð eftir klukkunni.. er að fara að vinna kl hálf 12 á miðnætti. Nenni því enganveginn en þetta eru peningar!!
Hef nú ekkert að segja... bara láta vita af mér! Takk og bless þar til næst...
Blehh
»
12.06.2008 16:11:28 / perlamarley
7 hlutir sem ég get gert:
- Hlegið
- Heyrt
- Talað
- Gengið
- Séð
- Grátið
- Lesið
7 hlutir sem ég get ekki gert:
- Flogið
- Lifað að eilífu
- Skilið latínu
- Haldið niðrí mér hlátri, er mér lífsins ómögulegt
- Gert neitt án þess að fá samviskubit
- Skitið peningum
- Lifað svo mikið sem brotabrot úr degi án tónlistar
7 hlutir sem heilla mig við hitt kynið:
- Breiðar herðar
- Fallegt bak
- Sjarmerandi bros
- Góður húmor
- Sterklegar hendur
- Eðal persónuleiki
- Góð rakspíralykt
7 frægir sem heilla mig:
- Eric Mabius
- Johnny Depp
- Patrick Dempsey
- Bruce Willis
- Isaiah Washington
- Tyrese Gibson
- Hugh Laurie, en samt eiginlega bara sem karakterinn House
7 setningar/orð sem ég nota mikið:
- Hörðu!
- Nenniru?
- Fökk
- Ohhhhh
- Neiii
- Shit
- YAY
7 hlutir sem ég sé akkúrat núna:
- Sjónvarp
- Ilmvatnsglas
- Regnhlíf
- Bækur
- Sígarettupakki
- Plastpoki
- Sófi
»
12.06.2008 02:12:48 / perlamarley
Mér barst í hendur birkilauf,
sem bylgjur höfðu máð,
og vindur feykt um freðna slóð,
og fært því enga náð,
og dauðinn hafði döprum lit
sinn dóm í svip þess skráð.
Og þetta bleika birkilauf
mér bar í hjartað inn
frá sólu bros, og blærinn strauk
svo blítt um mína kinn, -
varð aldingarður djásna dýr
og draumaskógur minn.
Hinn minnsti hlutur mælir oft
hið mikla töfraorð,
svo hátt úr lagarlöðri rís
hin löngu sokkna storð.Sit, maður, heill um myrka nótt
við minninganna borð.
Hvað átt þú bak við æfiraun
og árin liðin hjá,
er á þig starir sumri svipt,
með saklaus augu og blá,
sú þrá, er draums þíns daggir gekk
- hin djúpa, milda þrá?
Hvað átt þú þá? Eitt bjarkarblað,
ó, bróðir, það er nóg,
fyrst um það hópast hrannir söngs
úr hinum græna skóg,
og heilar kveðjur heim það ber
þess hjarta, er til þín sló.
Guðmundur Böðvarsson
Mér finnst þetta mjög fallegt ljóð. Vildi bara deila því með ykkur
»
10.06.2008 18:45:06 / perlamarley
Langaði bara að setja link á myndband sem will.i.am samdi og fékk fleiri fleiri manns til að taka þátt í myndbandinu við. We are the ones heitir lagið og það snerti mig á einhvern furðulegan hátt, mæli með að checka á þessu... hér er linkur
http://www.youtube.com/watch?v=ghSJsEVf0pU
»
Síður:
1 2